Thursday, October 6, 2011

Ég baka til að gleyma...

Nú er svo komið að mín er bara komin í 70% vinnu, kvaddi hjartadeildina með tárum ( og svita reyndar) og við tekur bara heilsugæslulíf, vinkonur mínar af hjartadeildinni vita hins að mér finnst gaman að baka:) en fæ svaðalegt samviskubit yfir að borða það allt ein þannig að það fær oft að rata með í vinnuna eða með kallinum í sína vinnu, vinnufélögum hans til mikillar gleði..
uppáhaldsþátturinn minn núna er einmitt Top Chef- Just dessert...alger snilld, ég gæti sko vel verið svona dessert kokkur og gert bara dessert..enda á ég vinkonur sem eru tilbúnar að fara út að borða bara til að fá dessert, merkilegt nokk erum við ekki 100 kg:) heldur bara ánægðar og sælar með að fá súkkulaði í kroppinn en endilega kíkið á þessa þætti...svo ætla ég að vera dugleg að skella inn uppskriftum hér í öllu fríiinu mínu:)
nammi...