Tuesday, August 19, 2014

Komin heim...

Eftir 2 vikna ferð um þýsklands er ég komin heim:) sem er svo gott eins og það var gaman..það var bara eitt erfitt...við vorum ekki með mikin farangur og vorum að ferðast mikið. Afleiðing : ekki hægt að versla mikið..ég labbaði "óvart" inn í HOME H&M í Stuttgart, sneri þó við fljótt því ég fann hjartsláttinn magnast og vissi samt að ég hefði ekkert pláss..best að yfirgefa svæðið en get huggað mig við ferð til Munchen í október og Berlín í desember...þá verður sko tekin staðan þarna aftur það er pottþétt...


Halda á þeim heim??


þegar ég gekk fram á þetta teppi ákvað ég að yfirgefa staðinn, vitandi að kallinn fengi taugaáfall ef ég birtist með ullarteppi í 30 stiga hita..en fallegt var það:)

En nú taka svona myndir við, loksins loksins búin að redda skrifborði fyrir mína og ég fer að græja vinnuaðstöðu heima:)

No comments:

Post a Comment